|
|
|
|
Bílastæðahús með 545 stæðum er við Hörpu Stæðin eru björt, upphituð og aðgengileg beint inn í húsið
Fyrir framan Hörpu er einungis hægt að hleypa gestum út úr farartækjum. Ekki er leyfilegt að leggja þar. Gjaldskylda er í húsinu frá kl. 7-24 alla daga. Metan- og rafbílar eru ekki undanþegnir gjaldskyldu.
Þegar komið er inn í bílahúsið þarf að greiða gjaldið í gjaldmælum sem eru 3 á hvorri hæð bílahússins. Hæðartakmörk bifreiða í kjallaranum er 2,2 m. Ef fólk lendir í vandræðum þá er vaktmaður alltaf á svæðinu. Hann er staðsettur við þjónustuborð í efri kjallara (K1). Hægt er að greiða með kreditkortum, mynt og í gegnum leggja.is (gjaldsvæði 0). Innan skamms verður einnig hægt að greiða með debetkortum í gjaldmælana. Einnig er hægt að kaupa miða í stæði fyrirfram þegar miðar eru sóttir í miðasölu Hörpu.
Mikilvægt er að muna að setja miðann, sem kemur úr gjaldmælinum, í glugga bifreiðar áður en farið er inn í húsið.
Bent skal á að bannað er að leggja bifreiðum á torginu fyrir framan eða til hliðar við Hörpu. Bílar eru sektaðir þar. Ef lagt er við vörumóttöku, sem ætluð er aðkomu neyðarbíla, eru bílar dregnir í burtu.
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru næst inngöngum. Gjaldskrá
- Tímagjald/Rate per hour kr. 200,-
- 4 tímar/Four hours kr. 650,-
- 8 tímar/Eight hours kr. 1.200,-
- Mánaðargjald (dagpassar kl. 8-18) kr. 11.000,-
- Vangreiðslugjald /Pentalty kr. 4.900,-
- Vangreiðslugjald ef greitt innan 3 daga kr. 2.900,-
Vangreiðslugjald er lagt á bifreið í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu bifreiðar í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma. Næsta virka dag eftir álagningu er krafan stofnuð og send í netbanka umráðamanns/eiganda ökutækisins til innheimtu. Eftir að krafan hefur verið stofnuð er einnig hægt að greiða gjaldið í bönkum og sparisjóðum.
Andmælaréttur Teljir þú álagningu vangreiðslugjaldsins ekki samræmast reglum 115 Security um notkun bílakjallarans í Hörpu er unnt að leggja fram beiðni um endurskoðun hennar á 115@115.is innan 14 daga frá álagningu gjaldsins.
|
|
|
|
| 115 Security ehf | Askalind 2 | 201 Kópavogur | 
|